Fótbolti

Madrídingar í engum vandræðum með nýliðanna

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Bale skoraði fyrstu tvö mörk Real í leiknum.
Bale skoraði fyrstu tvö mörk Real í leiknum. vísir/getty
Gareth Bale og Alvaro Morata sáu um markaskorunina í öruggum 3-0 sigri Real Madrid á nýliðum Leganes á heimavelli í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum.

Með sigrinum ná Madrídingar fimm stiga forskoti á Barcelona í bili en Börsungar geta saxað á forskotið þegar liðið mætir Sevilla í kvöld.

Velski sóknarmaðurinn Gareth Bale kom Real Madrid yfir á 38. mínútu eftir undirbúning Isco en Bale bætti við öðru marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Morata bætti við þriðja marki Real Madrid korteri fyrir leikslok og gerði út um leikinn fyrir Real Madrid en þetta var fjórði sigur liðsins í röð.

Luka Modric, króatíski miðjumaður Real Madrid, kom inn af bekknum á 62. mínútu en hann virðist ætla að vera klár í slaginn þegar Króatar mæta Íslandi um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×