Bíó og sjónvarp

Madonna ræður handritshöfund

Söngkonan leikstýrir næst myndinni Adé: A Love Story.
Söngkonan leikstýrir næst myndinni Adé: A Love Story.
Söngkonan Madonna hefur ráðið handritshöfund fyrir nýjasta leikstjórnarverkefnið sitt.

Dianne Houston, sem er einnig að vinna við væntanlega mynd um ævi Missy Elliott, hefur samþykkt að skrifa handritið fyrir Adé: A Love Story, að því er tímaritið The Hollywood Reporter greinir frá.

Myndin er byggð á vinsælli skáldsögu Rebeccu Walker sem fjallar um ástarsamband bandarísks nema sem er á ferðalagi um Afríku og manns sem hún hittir á eyju undan ströndum Kenía. Á meðal vandamála sem blossa upp er þegar konan sýkist af malaríu og borgarastyrjöld ríkir í kringum þau.

Þegar skáldsagan kom út á síðasta ári lagði Madonna blessun sína yfir hana á bókarkápunni með ummælunum: „Lesið þessa bók! Ótrúlegt ferðalag! Falleg ástarsaga!“

Madonna hefur áður leikstýrt einni mynd í fullri lengd, We, sem fjallaði um samband Edwards VIII. konungs og Wallis Simpson. Hún hlaut slæmar viðtökur gagnrýnenda og dræma aðsókn árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×