Erlent

Macchiarini skaðaði tiltrú fólks á sænskum læknarannsóknum samkvæmt óháðri rannsókn

Atli Ísleifsson skrifar
Paolo Macchiarini hóf störf á Karolinska sjúkrahúsinu árið 2010.
Paolo Macchiarini hóf störf á Karolinska sjúkrahúsinu árið 2010. Vísir/AFP
Starfsemi ítalska skurðlæknisins Paolo Macchiarini á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi hefur skaðað tiltrú fólks á sænskum læknarannsóknum. Þetta kemur fram í óháðri rannsókn um mál Macchiarini en niðurstöður hennar voru gerðar opinberar í dag.

Í skýrslunni segir að Macciarini hafi sýnt fram á ónæga þekkingu á og virðingu fyrir regluverki. Þá hafi hann ekki tryggt öryggi sjúklinga og ekki hafi verið gerðar nægilegar rannsóknir á dýrum áður en aðgerðirnar voru gerðar á mönnum. Aldrei hefði átt að ráða Macchiarini.

Í frétt SVT kemur fram að Macchiarini hafi hafið störf á Karolinska árið 2010 og á árunum 2011 til 2012 framkvæmt hann þrjár plastbarkaígræðslur. Tveir sjúklinganna eru nú látnir, en einn liggur nú á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum. Árið 2014 bárust þrjár tilkynningar frá heilbrigðisstarfsfólki þar sem Macchiarini var sakaður að hafa falsað niðurstöður rannsókna.

Sjá einnig: Ítalski skurðlæknirinn lifði tvöföldu lífi

Í skýrslunni segir jafnframt að starfsfólk sjúkrahússins hafi margt orðið fyrir skaða vegna framgöngu Macchiarini. Hann hafi borið ábyrgð á framkvæmd aðgerðanna, en að forsvarsmenn skurðstofanna þar sem aðgerðirnar voru framkvæmdar hafi einnig átt að tryggja öryggi sjúklinganna.

Kom frá Íslandi

Fyrsti sjúklingurinn sem gekkst undir plastbarkaíbræðslu hjá Macchiarini var Erítreumaðurinn Andemariam Beyene sem var sendur frá Íslandi. Hann lést árið 2014. Beyene var með krabbamein í hálsi og var sendur til Stokkhólms þar sem honum var boðið að gangast undir ígræðslu.

Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir tók þátt í aðgerðinni á Andemariam, og hefur áður sagst hafa talið aðgerðina framkvæmda í góðri trú. Læknarnir Tómas og Óskar Einarsson voru meðhöfundar að grein Macchiarini í læknatímaritinu The Lancet þar sem kom fram að aðgerðin hefði heppnast vel og að plastbarkaígræðslan hafi gefið góða raun.

Birgir Jakobsson landlæknir var forstjóri Karolinska þegar aðgerðirnar voru framkvæmdar.

Kjell Asplund framkvæmdi rannsóknina og ræddi meðal annars við Birgi Jakobsson, Tómas Guðbjartsson og Helgi Guðbergsson, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands.

Sjá má skýrsluna í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Barkaígræðsla sögð siðferðislegt stórslys

Í bréfi Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands til heilbrigðisráðherra er talið mikilvægt að rannsaka þátt íslenskra stofnana í barkaígræðslumálinu svokallaða. Heilbrigðisráðherra vill að þingið skoði möguleika á rannsóknarnefn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×