Má selja eignir til að standa undir lögfræðikostnaði 31. júlí 2010 18:30
Slitastjórn Glitnis hefur veitt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni leyfi til að selja þær eignir sem hann þarf til að standa undir lögfræðikostnaði vegna málaferla og daglegum útgjöldum. Jón Ásgeir segist ekki sjá hvaða kröfuhafar Glitnis eigi að græða á aðgerðum slitastjórnar gegn honum. Slitastjórn Glitnis fékk í gær úrskurð hjá dómara í London um kyrrsetningu á hundrað milljónum króna sem Jón Ásgeir millifærði af reikningi sínum daginn eftir að alþjóðleg kyrrsetning á eignum hans tók gildi. Peningarnir fóru til tveggja viðskiptafélaga hans og fyrirtækja tengdum þeim. Jón Ásgeir segist hafa verið að greiða skuldir. Greiðslubeiðnin hafi verið lögð fram nokkrum dögum fyrir kyrrsetningu. „...og það tekur einn til þrjá daga í Bretlandi að láta greiðslur ganga eftir og það kemur bersýnilega í ljós að ef reikningurinn hefði verið frosinn hefði ekki verið hægt að millifæra af honum, svo einfalt er það," segir Jón Ásgeir. Formaður slitastjórnar Glitnis sagði í samtali við fréttastofu að Jón Ásgeir gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist vegna brots á kyrrsetningarúrskurði og verið sé að kanna hvort ástæða sé til að beita frekari viðurlögum. „Það er ekkert slíkt í kortunum og ég hef undir höndum yfirlýsingu frá lögmönnum Glitnis, eftir að hún hélt þessu fram í Fréttablaðinu í morgun og þeir segja að ekkert slíkt sé í farvatninu," segir Jón. Fréttastofa hefur undir höndum afrit af tölvupósti frá lögmanni hjá bresku stofunni Slaughter&May sem starfar fyrir slitastjórn Glitnis sem staðfestir þessi orð. Slitastjórnin hefur veitt Jóni Ásgeiri leyfi til að selja eignir til að standa undir lögfræðikostnaði og daglegum útgjöldum. „Maður spyr sig hvað er skilanefndin í raun að fá út úr þessu, eða kröfuhafar Glitnis, ef ég má eyða öllum eignum í það að verja mig, sem mun örugglega verða niðurstaðan," segir Jón Ásgeir. Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, er stærsti hluthafinn í 365 miðlum sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira