Sport

Má ekki spila Metallica er hún gengur í búrið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spurning hvort Carla detti úr öllu stuði við að heyra ekki lagið sitt?
Spurning hvort Carla detti úr öllu stuði við að heyra ekki lagið sitt? vísir/Getty
Fyrrum strávigtarmeistari UFC, Carla Esparza, er með böggum hildar eftir að henni var tjáð af bardagasambandinu að hún mætti ekki spila sitt venjubundna inngöngulag.

Allan sinn feril hefur hún spilað hið frábæra lag Metallica, Harvester of Sorrow, en nú þarf hún að finna aðrar lausnir.

„Ég er algjörlega miður mín,“ sagði Esparza en hún á að berjast um helgina.

„Lagið skiptir mig miklu máli og kemur mér í gírinn. Ég hef alltaf notað þetta lag. Ég fékk svo sms um að ég gæti ekki notað það lengur. Það er víst út af einhverjum lagareglum og hefur ekkert að gera með UFC.“

Esparza getur ekki hugsað sér að labba í búrið án þess að heyra lagið en líst illa á að vera með heyrnatól. Hún hefur beðið um að ekkert lag verði spilað og hún geti því sjálf raulað lagið góða er hann labbar í búrið.

Hér má sjá Metallica flytja þetta stórkostlega lag á tónleikum.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×