Skoðun

Má ekki ræða öll mál leiðsögumanna?

Jakob S. Jónsson skrifar
Ég hef á þessum vettvangi fjallað nokkuð um málefni Félags leiðsögumanna í þeirri von að eitthvað af þrennu myndi gerast: í fyrsta lagi að leiðsögumenn fengju þann samastað í tilverunni sem gæti eflt stéttarvitund þeirra og staðið vörð um kjör þeirra, í öðru lagi að Félag leiðsögumanna endurskoðaði afstöðu sína til leiðsögunáms og leiðrétti ýmsar rangfærslur um „viðurkennda námskrá“ sem til þessa hafa spillt fyrir samstöðu leiðsögumanna og í þriðja lagi að félagið yrði áberandi aðili að mótun farsællar stefnu í ferðaþjónustu – ekki veitir af góðum kröftum í þá vinnu þegar ferðamönnum fjölgar jafn hratt og raunin er og þörf er á markvissu átaki svo ferðaþjónustan megi vaxa að metnaði og gæðum.

En einhverra hluta vegna hefur allt sem ég hef sagt og gert farið algerlega öfugt ofan í stjórn Félags leiðsögumanna. Stjórn félagsins hefur ekki látið svo lítið að svara ábendingum mínum – og annarra – um það sem betur mætti fara, hún hefur ekki með einu orði svarað eða tekið undir gagnrýni mína á afstöðu félagsins til leiðsögunáms og þeirra réttinda sem það veitir eða veitir ekki og þegar kemur að því að ræða á aðalfundi þess um þessi mikilvægu mál þá eru þau einfaldlega slegin af borðinu með gerræði og valdníðslu fundarstjóra og ekki verður annað skilið af athugasemd sem stjórn FL birtir á heimasíðu félagsins en að sú valdníðsla sé bara í góðu lagi!

Ég hef skrifað bréf þar sem ég bið um að stjórn FL boði til framhaldsaðalfundar svo leiðrétta megi það sem miður fór í fundarstjórn; við því bréfi hefur ekkert svar borist. Stjórn FL virðist því ætla að brjóta á afgerandi hátt gegn lögum síns eigin félags, félagslögum og fundarsköpum. Því verður auðvitað ekki unað. Það á erindi við alla leiðsögumenn, sem og almenning, sem lætur sig varða framkomu aðila í ferðaþjónustu.

Það er fróðlegt að lesa fyrrnefnda athugasemd stjórnar FL á heimasíðunni; áhugasamir geta nálgast hana á vefslóðinni www.touristguide.is. Fyrirsögnin er „Andsvar við ásökun um valdníðslu FL“ og ég er í athugasemdinni sakaður um að finna „félaginu margt til foráttu“ ásamt því að hafa ýjað að því að „stjórn félagsins hafi beitt valdníðslu á fundinum“. Síðan er því lýst yfir að stjórn FL telji ekki að frekar þurfi að fjalla um þetta mál í fjölmiðlum og að ræða megi öll málefni leiðsögumanna á fundum sem boðað er til í nafni félagsins.

Það er einkennilegur umræðuvilji þegar fundarstjóri aðalfundar beitir óátalið gerræði til að slá umræðu um hagsmunamál út af borðinu. Það er sömuleiðis undarlegur umræðuvilji sem kemur fram í því að bera skoðanir upp á viðmælendur sína, en það gerir stjórn FL óhikað. Það getur hver séð, sem les greinar mínar, sem birst hafa hér í Fréttablaðinu (25.?febrúar, 17.?mars og 6. apríl) að ég er aldeilis ekki að finna félaginu eitt eða neitt „til foráttu“. Ég hef þvert á móti talið nauðsynlegt að efla það og þar með styrkja samstöðu heildar leiðsögumanna. Ég tala heldur hvergi í grein minni um „valdníðslu stjórnar“. En stjórn Félags leiðsögumanna telur í lagi að snúa út úr orðum mínum, rangfæra og fara með ósannindi í stað þess að beita málefnalegum rökum um það sem efnið varðar – félagsaðild á grundvelli jafnréttis og hagsmunabaráttu fyrir heildina.

Auðvitað ræður stjórn Félags leiðsögumanna ein með hvaða sæmd hún vill taka á málefnum sem félagsmenn vilja taka upp á fundum félagsins. Því ræður enginn annar! Í formannspistli sem birtist á heimasíðu FL að loknum aðalfundi sá formaður þess ástæðu til að orða umræðuviljann á eftirfarandi hátt: „Það var hart sótt að félaginu með róttækri lagabreytingartillögu og sýndu fundarmenn með afgerandi hætti hvaða hug þeir bera til slíkra aðfara.“ Þetta er í stjórnarpistlinum kallað að „ræða megi öll málefni leiðsögumanna á fundum sem boðað er til í nafni félagsins“.

Það er augljóslega eitt mál, sem stjórn Félags leiðsögumanna vill ekki að sé rætt, hvort sem er innan eða utan félags: það mál varðar eðli og hlutverk hins svokallaða fagfélags. Það er nefnilega sérhagsmunafélag sem miðar að því að varðveita hagsmuni sumra. Það má ekki draga fagfélagið í efa, jafnvel þótt aðeins sé verið að tala um að Félag leiðsögumanna veiti öllum starfandi leiðsögumönnum félagsaðild á jafnréttisgrundvelli og berjist fyrir hagsmunum heildarinnar.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Leiðin áfram er aukið norrænt samstarf

Í meira en 60 ár hefur Norðurlandaráð stuðlað að auknu samstarfi og samstöðu norrænu þjóðanna með þeim óumdeilda árangri að í dag eru samfélög Norður­landanna allra talin einhver þau farsælustu í heiminum




Skoðun

Sjá meira


×