Innlent

Lýsti kröfum upp á hálfan milljarð í bú föllnu bankanna

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona forsætisráðherra, á félagið Wintris Inc. sem skráð er á Bresku Jómfrúareyjum.
Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona forsætisráðherra, á félagið Wintris Inc. sem skráð er á Bresku Jómfrúareyjum. vísir/Valli
Félagið Wintris Inc. sem er í eigu Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra, lýsti um 500 milljóna króna kröfum í slitabú föllnu bankanna.

Um að ræða tvær kröfur upp á tæpar 174 milljónir króna í slitabú Landsbankans og þrjár kröfur í slitabú Kaupþings. Þær kröfur hljóða upp á 43.195.450 krónur, 43.456.402 krónur og 134.134.079. Kröfurnar þrjár í slitabú Kaupþings nema því rúmlega 220 milljónum króna.

Þá er félagið jafnframt með kröfu í slitabú Glitnis upp á eina milljón svissneskra franka en sé miðað við gengi gjaldmiðla daginn sem neyðarlögin voru sett, 6. október 2008, nemur krafan 100 milljónum íslenskra króna.

Ekki liggur fyrir hversu mikið, ef eitthvað, fékkst greitt upp í kröfur félagsins en Vísir hefur óskað eftir upplýsingum varðandi það.

Anna Sigurlaug greindi frá félaginu í ítarlegri færslu um fjármál sín sem hún birti á Facebook í gærkvöldi. Félagið var stofnað árið 2007 en hún tók við því í ársbyrjun 2008. Félagið heldur utan um fjölskylduarf hennar en Anna Sigurlaug er dóttir Páls Samúelssonar, fyrrverandi eiganda Toyota-umboðsins á Íslandi, sem seldi reksturinn árið 2005. Fjölskylduarfur Önnu er þaðan kominn.

Félagið er skráð á Bresku Jómfrúareyjunum en er í fjárstýringu hjá útibúi Credit Suisse í Bretlandi samkvæmt upplýsingum frá Jóhannes Þór Skúlasyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra. Ekki er minnst á félagið í hagsmunaskrá forsætisráðherra en honum er ekki skylt að gefa upp séreignir maka.

Uppfært klukkan 14.20: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar kom fram að kröfur Wintris hafi hljóðað upp á 400 milljónir króna. Þá lágu ekki fyrir upplýsingar um kröfur í slitabú Glitnis en fréttin hefur nú verið uppfærð í samræmi við upplýsingar sem bárust um það.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×