Innlent

Björn fundinn

Randver Kári Randversson skrifar
Björn Hjálmarsson
Björn Hjálmarsson Mynd/lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Uppfært 21.08

Björn er kominn í leitirnar.

Upprunaleg frétt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Birni Hjálmarssyni, 51 ára.

Síðast er vitað um ferðir hans í kringum Vatnsholt fyrir austan Selfoss í kringum hádegi í dag.  Björn var þá á bifreiðinni ZR-H23 sem er svört Ford Exlporer jeppabifreið árgerð 2007.  Ekki er vitað hvert hann ætlaði sér þaðan.

Björn Hjálmarsson er fæddur árið 1963 (51 ára), u.þ.b. 170 cm á hæð, meðal maður að vexti, með dökkt stutt hár og brún augu.  Hugsanlega er hann íklæddur grænni peysu og gallabuxum.

Þeir sem verða varir við Björn eða bifreiðina ZR-H23 eru beðnir um að hafa strax samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í símanúmerið 444-1000.  Jafnframt er skorað á Björn að láta vita af ferðum sínum hið fyrsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×