Innlent

Lýsa yfir furðu sinni á málflutningi lögreglustjórans í Eyjum

Atli Ísleifsson skrifar
„Það er skylda fjölmiðla að segja frá ofbeldisglæpum og það þjónar hagsmunum engra nema ofbeldismannanna að þegja um þá,“ segir í ályktuninni.
„Það er skylda fjölmiðla að segja frá ofbeldisglæpum og það þjónar hagsmunum engra nema ofbeldismannanna að þegja um þá,“ segir í ályktuninni. Vísir/Anton
Stjórnir Blaðamannafélags Íslands og Félags fréttamanna lýsa yfir furðu sinni á málflutningi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum og þeim sjónarmiðum sem liggja honum til grundvallar varðandi fréttaflutning af kynferðisbrotamálum sem upp kunna að koma á Þjóðhátíð.

Vísir greindi frá því í gær að lögreglustjórinn Páley Borgþórsdóttir hefði gefið út bréf og sent til allra viðbragðsaðila þar sem hún brýnir fyrir þeim að upplýsa fjölmiðla alls ekki um hugsanleg kynferðisbrot. Leggur hún til að allir gæslumenn, starfsmenn neyðarmóttöku, heilbrigðisstarfsmenn, sjúkraflutningsmenn og allir sem komi að þessum brotum svari: „Við höfum enga heimild til að veita slíkar upplýsingar“, og veiti engar upplýsingar.

Í sameiginlegri ályktun frá samtökunum kemur fram að sú tilraun til þöggunar sem þar sé lögð til sé algerlega úr takt við þau meginsjónarmið um upplýsta og opna umræðu sem lýðræðissamfélög hljóta að styðjast við vilji þau standa undir nafni.

„Það er skylda fjölmiðla að segja frá ofbeldisglæpum og það þjónar hagsmunum engra nema ofbeldismannanna að þegja um þá.  Um það þekkjum við því miður alltof mörg dæmi frá liðnum áratugum.  Það er engin betri aðferð til að fyrirbyggja og lágmarka ofbeldi heldur en að tala um það af hreinskilni. Hvernig eigum við með öðrum hætti að takast á við fordóma og ranghugmyndir og fyrirbyggja gróusögur af öllu tagi?

Stjórnir BÍ og FF hvetja lögreglu og aðra viðbragðsaðila til þess að ræða þau ofbeldisbrot, kynferðisbrot jafnt sem önnur, sem upp kunna að koma á þjóðhátíð með opinskáum hætti með hagsmuni almennings að leiðarljósi.

Það er beinlínis samfélagsleg og lýðræðisleg skylda þeirra að greina skilmerkilega frá því sem gerist og fréttnæmt þykir á þjóðhátíð í þágu þeirra sem sækja hátíðina heim og heimamanna í Vestmannaeyjum.“


Tengdar fréttir

Spyr hvort einnig eigi að þagga niður önnur brot

Ráðgjafi hjá Stígamótum spyr hvað það sé við kynferðisbrot sem gerir þau þess virði að þagga niður. Þolendur séu einnig að öðrum brotum sem kunna koma upp á útihátíðum.

Telur bréfið í takt við kröfu Druslugöngunnar

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir það að kynferðisbrotamál fari í fjölmiðla eigi ekkert skylt við það hvernig tekið er á þeim innan kerfisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×