Erlent

Lynch bíður samþykkis þingsins

ingvar haraldsson skrifar
Loretta Lynch svarði spurningum þingnefndar í gær.
Loretta Lynch svarði spurningum þingnefndar í gær. vísir/ap
Lorretta Lynch, dómsmálaráðherraefni Baracks Obama Bandaríkjaforseta, svaraði spurningum þingnefndar öldungadeildar í gær. Staðfesti öldungadeildin tilnefningu Lynch í embættið verður hún fyrsti svarti kvenkyns dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.

Lynch var þráspurð út í stefnu yfirvalda í innflytjendamálum af þingmönnum repúblikana. Lynch sagðist ekki deila áhyggjum þingmannanna heldur hefði stefna Obama-stjórnarinnar verið skynsamleg miðað við aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×