Fótbolti

Lykilorðið er pressa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Á mánudaginn verða þrjú ár liðin frá því að Freyr Alexandersson stýrði íslenska kvennalandsliðinu í fyrsta sinn. Leikurinn var gegn Sviss á Laugardalsvelli og var sá fyrsti í undankeppni HM 2015. Hann var ekki góður, tapaðist 0-2 og verður helst minnst fyrir að vera sá síðasti á löngum og glæsilegum landsliðsferli Katrínar Jónsdóttur.

Á þessum þremur árum síðan Freyr tók við hefur íslenska landsliðið tekið talsverðum breytingum. Reynslumiklir leikmenn og stórir persónuleikar hafa horfið af landsliðssviðinu og aðrir komið í staðinn eins og gerist, en fyrst og síðast hefur leikstíllinn breyst. Og lykilorðið í því samhengi er pressa.

Freyr virðist hafa áttað sig snemma á því að það hentar þeim leikmönnum sem eru í burðarhlutverki í landsliðinu í dag betur að spila varnarleikinn framar og ráðast á andstæðinginn í stað þess að bíða eftir honum. Miðjumenn íslenska liðsins, Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir, búa yfir gríðar­lega mikilli hlaupagetu og með Glódísi Perlu Viggósdóttur, arftaka Katrínar í vörninni, á íslenska liðið auðvelt með að verjast framarlega. Glódís er einnig mikilvæg í uppspili íslenska liðsins en hún hefur flestar sóknir þess.

Undankeppni HM 2015 var eins konar undirbúningsmót fyrir undan­keppni EM 2017, sérstaklega eftir að draumurinn um að spila á HM í Kanada fauk út um gluggann eftir 0-1 tap fyrir Dönum. Leikirnir tveir sem eftir voru í undankeppninni voru nýttir til að gefa yngri leikmönnum tækifæri á meðan stór nöfn eins og Ólína G. Viðarsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir voru ekki valdar í landsliðshópinn. Þetta var stór ákvörðun en sýndi að þjálfarinn var óhræddur við að gera breytingar.

Þessir tveir leikir, gegn Ísrael og Serbíu, unnust örugglega en Algarve-mótið 2015 gaf ekki mikla ástæðu til bjartsýni. Ísland lék fjóra leiki og mistókst að skora í þeim öllum.

Þrátt fyrir þetta bakslag var greinilegt að íslenska liðið var á réttri leið. Staðfestingin á því fékkst í fyrsta leik undankeppni EM 2017, gegn Hvít-Rússum á Laugardalsvellinum. Leikurinn vannst bara 2-0 en spilamennskan var góð og mörkin áttu að verða miklu fleiri.

Það var þó engin vöntun á mörkum í undankeppni EM 2017. Þau urðu alls 34 en aðeins Spánn (39) og Þýskaland (35) skoruðu fleiri. Andstæðingarnir voru vissulega ekki alltaf þeir sterkustu en íslenska liðið sýndi í þessari undankeppni framfarir þegar kemur að því að stjórna leikjum.

Það small svo allt saman í útileiknum gegn Skotum þar sem Ísland samtvinnaði ákafa pressuvörn og góðan fótbolta. Skotaleikurinn í fyrradag var öllu daprari og sá slakasti í undankeppninni. Það verður þó að taka með í reikninginn að vægi hans var ekki mikið þar sem Ísland hefði þurft að tapa með fimm mörkum til að missa toppsætið í riðlinum.

Frammistaðan í undankeppninni var jákvæð en hún telur lítið ef Ísland fellur á prófinu í lokakeppninni í Hollandi. Hún er stóra prófið. Íslenska liðið virðist vel undirbúið en það þarf að nýta næstu mánuði vel eins og Freyr benti á eftir leikinn gegn Skotum í fyrradag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×