Körfubolti

Lykilmenn Tindastóls spiluðu 40 mínútur í úrslitaleik í unglingaflokki í gær

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pétur Rúnar og Ingvi fyrir miðju.
Pétur Rúnar og Ingvi fyrir miðju. vísir/óój
Um helgina fara fram úrslit yngri flokka í körfubolta í Stykkishólmi.

Tindastóll lék til úrslita í unglingaflokki karla þar sem Stólarnir mættu FSu og höfðu betur, 74-71.

Nokkrir af leikmönnum meistaraflokks Tindastóls eru einnig gjaldgengir í unglingaflokk. Þeirra á meðal eru Ingvi Rafn Ingvarsson, Pétur Rúnar Birgisson og Viðar Ágústsson sem eru allir í stórum hlutverkum í meistaraflokksliði Tindastóls sem sækir KR heim í þriðja leiknum í lokaúrslitum Domino's deildarinnar í kvöld.

Þjálfari unglingaflokks Tindastóls er Israel Martin, sem stýrir einnig meistaraflokki félagsins. Þrátt fyrir að aðeins um sólarhringur væri í þriðja leikinn gegn KR var Martin óhræddur að nota þremenninga í úrslitaleiknum í gær.

Pétur og Viðar spiluðu báðir allar 40 mínúturnar í úrslitaleiknum og Ingvi spilaði litlu minna, eða 37 mínútur.

Ingvi skoraði 20 stig í úrslitaleiknum og tók sex fráköst. Pétur var með 17 stig, fjögur fráköst og sex stoðsendingar og Viðar skilaði 13 stigum og 17 fráköstum.

Það verður svo að koma í ljós hvernig þremenningarnir koma undan leiknum í gær en Tindastólsliðið má ekki við fleiri skakkaföllum. Myron Dempsey spilaði ekki tvo fyrstu leikina gegn KR og þá hefur Darrell Flake glímt við meiðsli og var draghaltur bróðurpartinn af öðrum leiknum á fimmtudaginn.

Leikur KR og Tindastóls hefst klukkan 19:15 í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Lewis er ekki að hætta: Aldur er bara tala

Nýliðar Tindastóls eru komnir í úrslitaeinvígi Domino's-deildar karla í körfubolta og stóran þátt í því á hinn 39 ára gamli Darrel Lewis sem hefur farið á kostum í vetur. Hann er ekki að spila síðustu leiki ferilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×