Handbolti

Lykilmenn framlengja við Hauka

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Brynjólfur og Janus ásamt Gunnari Magnússyni, þjálfara Hauka.
Brynjólfur og Janus ásamt Gunnari Magnússyni, þjálfara Hauka. mynd/heimasíða hauka
Handboltamennirnir Janus Daði Smárason og Brynjólfur Snær hafa framlengt samninga sína við Hauka til ársins 2017.

Janus Daði kom til Hauka frá Århus Håndbold í Danmörku fyrir síðasta tímabil og átti stóran þátt í því að Hafnarfjarðarliðið vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrra.

Janus Daði hefur spilað mjög vel fyrir Hauka í vetur en hann er næstmarkahæsti leikmaður Olís-deildarinnar með 124 mörk. Aðeins FH-ingurinn Einar Rafn Eiðsson hefur skorað fleiri mörk í vetur (134).

Brynjólfur Snær, sem er uppalinn hjá Haukum, hefur sömuleiðis átt gott tímabil en hann hefur skorað 28 mörk úr hægra horninu í vetur.

Haukar mæta Aftureldingu í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins klukkan 16:00 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×