Lífið

Lyftir ógeðslega þungum lóðum og ætlar að verða ógeðslega massaður

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Dóri DNA heimsótti útvarpsstöðina FM 957 í dag og talaði um að hann vakni alltaf mjög snemma á morgnana til að fara í ræktina.

„Ég verð að vakna mjög snemma, fara í ræktina, lyfta ógeðslega þungum lóðum og verða ógeðslega massaður. Ég get ekki skammast mín fyrir það,“ segir Dóri eins og heyra má i meðfylgjandi hljóðbroti. Gerir Dóri þetta til að líkjast hasarmyndahetjunni The Rock.

„Ég er sko með langtímamarkmið. Það er að líta út eins og leikarinn Dwayne Johnson, fyrirmyndin mín, The Rock,“ segir hann og bætir því við hvernig honum leið þegar hann sá leikarann fyrst.

„Ég bara horfði á þennan mann og sagði upphátt, alveg einlægt: Ég sé sjálfan mig í þessum manni.“

Skemmst er frá því að minnast þegar Dóri lofaði að verða jafn massaður og The Rock á Twitter ef tístið hans fengi fimm hundruð endurtíst. Hann fékk þau en í meðfylgjandi hljóðbroti segir Dóri að Egill „Gillz“ Einarsson sé sinn lýðheilsusérfræðingur og að þessi umbreyting taki þrjú ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×