Skoðun

Lýðskrumi svarað

Halldór Gunnarsson skrifar
Þar sem ég býst ekki við að formaður Alþýðufylkingarinnar, Þorvaldur Þorvaldsson, lesi Morgunblaðið, sbr. grein mína þar 17. október sl. um inneign ríkis og sveitarfélaga hjá lífeyrissjóðunum, leyfi ég mér að útskýra þetta nánar fyrir lesendum og Þorvaldi, sem sagði: „Skatturinn var aldrei borgaður. Hann varð eftir hjá sjóðsfélögunum vegna frádráttar frá skattstofni. Þessir peningar eru peningarnir sem fólkið hélt eftir og er búið að eyða fyrir löngu síðan.

Annað hvort er svona framsetning skilningsleysi eða lýðskrum.

Árið 1969 var komið á 12% skylduframlagi af launum á greiðslu til lífeyrissjóða frá launþegum og atvinnurekendum. Fram til 1988 var greiddur skattur til ríkis og sveitarfélaga af þessu framlagi. Það ár var lögum breytt í þá veru að iðgjaldið var undanþegið skatti, en greiðsla sem samsvaraði skatti af iðgjaldinu var innt af hendi til lífeyrissjóðanna. Launþeginn skyldi því greiða skatt af útgreiðslu lífeyris frá lífeyrissjóði þegar hann fengi greiðsluna. Með þessari breytingu eru margir lífeyrisþegar í dag að greiða skatt í annað sinn af sama gjaldstofni, sem er ólöglegt.

Inneign lífeyrissjóða í dag er a.m.k. 3.500 milljarðar, þannig að ríkisjóður á í ógreiddum skatti hjá lífeyrissjóðunum að lágmarki 800 milljarða og sveitarfélög 130 milljarða. Útreikning má sjá á flokkurfolksins.is. Um leið og þessir fjármunir væru innkallaðir, myndu lífeyrissjóðir greiða út hlut lífeyrisþega án skatts. Í framhaldi myndu launþegar og atvinnurekendur greiða skatt til ríkis og sveitarfélaga af framlagi sínu til lífeyrissjóða og myndi muna verulega um þá fjármuni til ríkisjóðs.

Flokkur fólksins vill breyta þessu, spara rekstur á um 30 lífeyrissjóðum sem kostar í dag 10 milljarða á ári, með því að stofna einn deildaskiptan sjóð, tengdan almannatryggingum, sem tryggi lágmarks framfærslu og einnig hlutfallslegan eignarétt þeirra einstaklinga, sem í hann hafa greitt. Þetta er ekki tillaga um ölmusu til að vinna hylli fjöldans með rangfærslu, eins og Þorvaldur sagði í lýðskrumi eða af skilningsleysi. Þetta er tillaga um fjármögnun til að rétta við öll stoðkerfi þjóðarinnar sem eru að hruni komin, heilbrigðiskerfið, menntakerfið, samgöngurnar, löggæsluna og til að tryggja lágmarksframfærslu, hækkun á lægstu launum og afnema verðtryggingu á neytendalánum, þannig að ungt fólk geti eignast heimili.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×