Erlent

Lula skipaður starfsmannastjóri Rousseff forseta

Atli Ísleifsson skrifar
Ákvörðun forsetans olli mótmælum víða á götum úti í nótt.
Ákvörðun forsetans olli mótmælum víða á götum úti í nótt. Vísir/AFP
Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, hefur skipað forvera sinn í starfi, Luiz Inacio Lula da Silva, sem starfsmannastjóra forsetaembættisins.

Ákvörðun Rousseff þýðir að erfiðara verður fyrir saksóknara í landinu að ákæra Lula, sem sakaður er um umfangsmikið peningaþvætti og aðra spillingu.

Ákvörðun forsetans olli mótmælum víða á götum úti í nótt en Rousseff segir að skipun Lula hafi ekki haft neitt með spillingarmálið að gera.

Símtal á milli þeirra tveggja sem gert hefur verið opinbert virðist þó benda til þess að hún hafi einmitt ráðið sinn gamla félaga í starfið til að koma honum í skjól.

Lula hefur ávallt hafnað öllum ásökunum um spilllingu og segir þær runnar undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×