Sport

Lukkudýr Vikings hætt störfum eftir 21 ár

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ragnar á leik með Vikings.
Ragnar á leik með Vikings. Vísir/Getty
Víkingurinn Ragnar sem hefur verið lukkudýr Minnesota Vikings í 21 ár hefur ákveðið að hætta störfum sem lukkudýr félagsins eftir að hafa ekki náð að komast að samkomulagi um nýjan samning.

Ragnar sem var leikinn af bandaríska manninum Joe Juranitch var vanur að keyra inn á völlinn á fjólubláu mótorhjóli fyrir alla leiki á undan leikmönnum og klappstýrum liðsins.

Var hann ekki mættur fyrir fyrsta leik liðsins gegn Detroit Lions um helgina en það hefur nú verið staðfest að hann muni ekki halda uppi þessum sið á þessu tímabili.

Stuðningsmenn liðsins hafa þegar hafið undirskriftarsöfnun og hafa 10.000 aðdáendur skrifað undir áskorun þess að Minnesota Vikings semji aftur við Ragnar.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×