Enski boltinn

Luke Shaw: Það var óvíst hvort ég gæti spilað fótbolta aftur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luke Shaw fótbrotnaði í þessari tæklingu.
Luke Shaw fótbrotnaði í þessari tæklingu. vísir/getty
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, fótbrotnaði illa í leik gegn PSV Eindhoven í Meistardeildinni í ágúst í fyrra og spilaði ekki meira á síðasta tímabili.

Hann sneri aftur inn á völlinn, tíu mánuðum síðar, um síðustu helgi þegar United vann Wigan, 2-0, í æfingaleik áður en liðið hélt í ferð til Kína.

Shaw var eðlilega í skýjunum með endurkomuna en fótbrotið var svo skelfilegt að það var spurning um hvort ferli bakvarðarins væri hreinlega lokið.

„Það var svo tilfinningaþrungin stund þegar ég spilaði fyrsta leikinn eftir endurkomuna. Mér hefur aldrei á ævinni liðið jafnvel,“ sagði Shaw við fréttamenn í Kína þar sem hann er með Manchester United í æfingaferð.

„Það var óvíst hversu langan tíma það myndi taka fyrir mig að ná mér heilum og í raun óvíst hvort ég myndi spila aftur. En nú hlakka ég bara til undirbúningstímabilsins og ætla mér að vera í góðu standi,“ sagði Luke Shaw.

Shaw var orðinn landsliðsmaður Englands þegar hann fótbrotnaði en hann gekk í raðir United 19 ára gamall í júní 2014 og varð þá dýrasti unglingurinn á Englandi. Kaupverðið var 30 milljónir punda.

Hann var fastamaður í byrjunarliði Manchester United sem fór mjög vel af stað á síðustu leiktíð og þá spilaði hann báða leiki Englands í undankeppni EM 2016 áður en hann meiddist.


Tengdar fréttir

Luke Shaw fótbrotnaði í Eindhoven

Bakvörður Manchester United var tæklaður illa í vítateig PSV og verður ekki meira með á þessari leiktíð.

Öruggur sigur í fyrsta leik Mourinho

Manchester United vann nokkuð þægilegan 2-0 sigur á Wigan í fyrsta leik liðsins undir stjórn Jose Mourinho en bæði mörk leiksins komu í seinni hálfleik.

Mourinho hrósaði Luke Shaw eftir fyrsta leikinn

Portúgalski knattspyrnustjórinn hrósaði viðhorfi Luke Shaw eftir fyrsta æfingarleik sumarsins hjá Manchester United en hann greindi frá því að bakvörðurinn hefði eytt sumarfríinu á æfingarsvæði Manchester United í endurhæfingu.

Luke Shaw: Ég kem sterkari til baka

Bakvörður Manchester United þakkaði fyrir stuðninginn á Twitter skömmu eftir að fótbrotna illa í Meistaradeildinni.

Luke Shaw kominn á lappir

Luke Shaw, leikmaður Manchester United, er kominn á lappir og birtir hann mynd af sér á Instagram-síðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×