Fótbolti

Luiz Adriano fyrsti Brasilíumaðurinn til að skora fimmu - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luiz Adriano.
Luiz Adriano. Vísir/AFP
Luiz Adriano endurskrifaði sögu brasilíska fótboltans í kvöld þegar hann skoraði fimm mörk fyrir Shakhtar Donetsk í 7-0 útisigri á BATE Borisov í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld.

Luiz Adriano varð þá fyrsti Brasilíumaðurinn sem nær að skora fimm mörk í einum leik í Evrópukeppni.

Luiz Adriano var líka fyrsti leikmaðurinn sem skorar fimm mörk á útivelli í sögu Meistaradeildarinnar en aðeins hann og Lionel Messi hafa skorað fimm mörk í einum leik síðan að Meistaradeildin var stofnuð árið 1992.

Luiz Adriano skoraði fjögur af fimm mörkum sínum í fyrri hálfleiknum þar af þrennu á aðeins sjö mínútna kafla.

Tvö marka hans voru af vítapunktinum þar á meðal eina markið hans í seinni hálfleik sem kom á 82. mínútu leiksins.

Fimman sögulega hjá Luiz Adriano í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×