Enski boltinn

Luiz á leiðinni í læknisskoðun

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Luiz fagnar í leik með Chelsea.
Luiz fagnar í leik með Chelsea. vísir/getty
Svo gæti farið að varnarmaðurinn David Luiz sé á leiðinni til Chelsea á nýjan leik.

Viðræður á milli Chelsea og PSG hafa verið í fullum gangi í dag en snemma í morgun var sagt að það bæri mikið á milli félaganna í samningaviðræðunum.

Chelsea seldi leikmanninn fyrir tveim árum síðan til PSG á 50 milljónir punda sem var heimsmet fyrir varnarmann.

Nú segja blaðamenn í Bretlandi að Luiz sé á leið í læknisskoðun en það þarf þó ekki að þýða að PSG og Chelsea hafi náð saman.

Geri þau það verður Luiz í það minnsta búinn í læknisskoðun og klár í að skrifa undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×