Fótbolti

Luis Suarez: Ég varð bara að klobba David Luiz

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luis Suarez fagnar öðru mark sinna í gær og David Luiz er svekktur fyrir aftan hann.
Luis Suarez fagnar öðru mark sinna í gær og David Luiz er svekktur fyrir aftan hann. Vísir/Getty
Luis Suarez skoraði tvö mörk fyrir Barcelona í gærkvöldi þegar liðið vann 3-1 útisigur á Paris Saint-Germain í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitunum Meistaradeildarinnar.

Luis Suarez skoraði annað og þriðja mark Börsunga í leiknum og í bæði skiptin fór hann illa með brasilíska varnarmanninn David Luiz.

„Framherji er alltaf að leitast eftir því að skora og þetta gekk tvisvar upp hjá mér," sagði Luis Suarez við BBC.

„Ég varð bara að klobba David Luiz því það var ekkert annað fyrir mig í stöðunni," sagði Suarez.  Hann hefur spilað margoft á móti David Luiz áður enda mættust þeir í ensku úrvalsdeildinni þegar Suarez var með Liverpool og David Luiz spilaði með Chelsea.

Luis Suarez hefur nú skorað 17 mörk fyrir Barcelona á tímabilinu þar af 11 mörk í síðustu 11 leikjum sínum.

Það er hægt að sjá þessi skemmtilegu mörk Luis Suarez hér fyrir neðan.

Í fyrra markinu fékk Úrúgvæmaðurinn boltann út á kanti og byrjaði á því að klobba David Luiz um leið og hann stakk sér inn í teiginn. Suarez stóð síðan Maxwell af sér áður en hann skoraði.

Í seinna markinu var David Luiz aftur illa staðsettur  en núna fyrir framan teiginn.  Suarez klobbaði hann um leið og hann stakk sér í gegn áður en hann afgreiddi boltann glæsilega upp í fjærhornið.

Luis Suarez skoraði líka tvö mörk á útivelli í sigri Barcelona á Manchester City í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitunum.  Hann hefur því heldur betur reynst liðinu vel í Meistaradeildinni.

Barcelona á seinni leikinn á heimavelli og er í frábærri stöðu eftir sigurinn í gær.

„Í fótbolta veist þú aldrei hvað gerist næst. Þeir hafa mikla hæfileika í sínu liði og við verðum að vera vakandi fyrir því að þetta er ekki búið. Seinni leikurinn verður góður leikur," sagði Barcelona-maðurinn kátur í leikslok.

Fyrri mark og fyrri klobbi Luis Suarez Seinna mark og seinni klobbi Luis Suarez



Fleiri fréttir

Sjá meira


×