Innlent

LSH í viðbragðsstöðu vegna inflúensunnar

Sveinn Arnarsson skrifar
Allt frá tíu og upp í fjörutíu prósent þjóðarinnar smitast árlega af inflúensunni. Fyrstu tilvik vetrarins hafa nú greinst.
Allt frá tíu og upp í fjörutíu prósent þjóðarinnar smitast árlega af inflúensunni. Fyrstu tilvik vetrarins hafa nú greinst. vísir/pjetur
Inflúensa hefur greinst á Landspítalanum í Reykjavík og hefur bráðamóttaka spítalans verið sett í viðbragðsstöðu. Að mati yfirlæknis mun þetta hafa í för með sér aukið álag á innviði spítalans því sjúklinga með einkenni inflúensu þarf að einangra frá öðrum sjúklingum.

„Sjúklingar með öndunar- eða kvefeinkenni fara í einangrun hjá okkur, þeir rannsakaðir sérstaklega til að ganga úr skugga um hvort um inflúensu sé að ræða,“ segir Jón Magnús Kristjánsson, settur yfirlæknir bráðalækninga á LSH.

Inflúensa er bráð veirusýking og veldur faraldri nánast á hverjum vetri á Íslandi. Á síðustu árum hefur um tíund þjóðarinnar og allt upp í 40 prósent smitast árlega af inflúensunni. Faraldur inflúensu varir hér á landi oft upp í tíu vikur

Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknirvísir/anton
Jón Magnús segir inflúensufaraldurinn geta haft mikil áhrif á innviði spítalans. Nú sé unnið að því að kaupa inn tæki sem hraðar greiningu á inflúensunni hjá sjúklingum. Reynt verður að fá tækið inn á allra næstu dögum. „Inflúensunni fylgja fleiri innlagnir en ella og oft hjá eldra fólki svo þetta getur haft mikil áhrif á starf spítalans,“ segir Jón Magnús.

Hann bætir því einnig við að það gæti tekið nokkrar vikur fyrir inflúensuna að ná hámarki. Fram að því fjölgi tilfellum jafnt og þétt fyrstu vikurnar. „Inflúensan er þannig að hún byrjar oft rólega og það koma inn nokkur tilfelli fyrstu vikurnar. Á þessari stundu vitum við ekkert hvenær við náum toppnum en á meðan setjum við spítalann í viðbragðsstöðu.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×