Golf

LPGA-tímabilið hjá Ólafíu hefst á Bahamaeyjum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía Þórunn á Íslandsmótinu 2014.
Ólafía Þórunn á Íslandsmótinu 2014. Vísir/daníel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í golfi, sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í dag fyrst allra íslenskra kvenna.

Um er að ræða gríðarlegt tækifæri fyrir Ólafíu en hún hefur tekið þátt í LET-mótaröðinni undanfarið ár, næst sterkustu atvinnumannaröð heimsins.

Ólafía tók þátt í loka úrtökumótaröðinni um helgina en hún hafnaði í 2. sæti að fimm hringjum loknum.

Átti hún í erfiðleikum á fyrsta hring af en fjórir frábærir hringir tryggðu henni þátttökurétt á næsta tímabili sem hefst í janúar.

Ætti hún að þreyta frumraun sína á Pure Silk Bahamas LPGA Classic á Ocean Club-golfvellinum á Bahama en verðlaunafé mótsins er 1,4 milljón dollara.

Árangur hennar í úrtökumótaröðinni gæti skipt máli þegar kemur að því en efstu kylfingarnir á úrtökumótinu ganga fyrir þegar raðað er í fyrstu mótin.

Hægt er að sjá dagskrána á LPGA-mótaröðinni á næsta ári hér en Ólafía hefur möguleikann á því að ferðast út um allan heim á mótaröðinni.


Tengdar fréttir

Tekst Ólafíu að endurskrifa íslenska golfsögu á morgun?

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er aðeins átján holum frá því að endurskrifa íslensku sögubækurnar í golfi en hún á möguleika á því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn sem kemst á PGA-mótaröðina.

Ólafía hafnaði í öðru sæti og tryggði sér þátttökurétt á LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, hafnaði í öðru sæti á úrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðinna sem lauk rétt í þessu en með því tryggði hún sér þátttökurétt á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×