Enski boltinn

Lovren eyddi Instagram-reikningi sínum eftir viðbjóðslegt áreiti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool, hefur eytt Instagram reikningi sínum eftir að aðdáendur félagsins misstu sig á Instagramsíðu hans í gær og kölluðu hann öllum illum nöfnum.

Liverpool tapaði illa fyrir West Ham, 3-0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær en leikurinn fór fram á Anfield.

Lovren gerðist sekur um slæm varnarmistök í öðru marki West Ham og fékk hann heldur betur að finna fyrir því eftir leik.

Hann misnotaði síðan algjört dauðafæri undir lok leiksins. 


Tengdar fréttir

Átti Coutinho að fá rautt? Myndband

Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, fékk sitt annað gula spjald í leik gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag og því rautt eftir rúmlega fimmtíu mínútna leik.

West Ham rúllaði yfir Liverpool

West Ham United vann góðan sigur á Liverpool, 3-0, í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×