Formúla 1

Lotus lofar bótum og betrun á næsta ári

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fær fílabeinstrjónan á Lotusbilnum að fjúka fyrir næsta tímabil?
Fær fílabeinstrjónan á Lotusbilnum að fjúka fyrir næsta tímabil? Vísir/Getty
Lotus liðið hefur átt erfitt tímabil og nú þegar á seinni hluta tímabilsins líður hefur E22 einungis fært liðinu 8 stig í keppni bílasmiða. Í fyrra náði liðið í 315 stig.

Tæknitjóri Lotus, Nick Chester er spenntur fyrir því að byrja á byrjunarreit á næsta tímabili. Hann segir að E23 verði gjörbreyttur. Breytingarnar muni bæði ná til yfirbyggingar bílsins og tækjabúnaðar undir henni.

„Það eru reglubreytingar væntanlegar á framhluta bílsins bæði undirvagni og trjónu,“ segir Chester

„Þar til viðbótar munu vélin og kælikerfið liggja allt öðruvísi sem þýðir að útlit bílsins verður allt annað,“ bætti Chester við.

Orðrómur er á kreiki um að Lotus hafi samið við Mercedes um að skaffa liðinu vélar á næsta tímabili. Renault vélin sem Lotus notar í ár hefur ekki virkað vel með bílnum.

„Ég hef fulla trú á að við getum klárað tímabilið með sæmd. Það ætti að gefa okkur góðan meðbyr inn í næsta tímabil,“ sagði Pastor Maldonado, annar ökumanna liðsins.


Tengdar fréttir

Hvern fer að vanta íhluti eftir níu keppnir?

Aukin áhersla er nú í Formúlu 1 á áreiðanleika. Hér förum við yfir hver er búinn að nota hvað. Refsingar liggja við notkun fleiri hluta en heimilt er.

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×