Bílar

Lotus í sæng með Kínverjum

Finnur Thorlacius skrifar
Lotus Evora.
Lotus Evora.
Breski sportbílaframleiðandinn Lotus og Goldstar Heavy Industrial Company í Kína hafa stofnað til samstarfs um smíði Lotus bíla í Kína. Til stendur að smíða nýja bíla Lotus hjá Goldstar, bíla sem þróaðir verða í Kína og henta kaupendum þar.

Lotus ætlar áfram að smíða sínar núverandi bílgerðir, Evora, Exige og Elise í Hethel í Bretlandi. Fyrir aðeins tveimur árum benti flest til þess að Lotus væri að fara á hausinn og missti Lotus þá fjórðunginn af starfsfólki sínu.

Lotus tókst hinsvegar að snúa vörn í sókn og í fyrra jók Lotus við sölu bíla sinna um heil 55% og opnaði 36 nýja sölustaði.  Það eru því nýir timar hjá Lotus og fyrirtækið ætlar ekki að missa af þeim tækifærum sem bílaframleiðendum stendur til boða í Kína.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×