Lífið

Loreen snýr aftur í undankeppni Eurovision í Svíþjóð

Birgir Olgeirsson skrifar
Loreen á sviði.
Loreen á sviði. Vísir/Getty
Sænska Eurovision-stjarnan Loreen mun taka þátt í Melodifestivalen, undankeppni Svía fyrir Eurovision, á næsta ári.

Loreen vann Eurovision árið 2012 með laginu Euphoria, sem náði gríðarlegum vinsældum í kjölfarið en lagið náði til að mynda í þriðja sæti breska smáskífulistans, en það var í fyrsta skipti sem Eurovision-lag utan Bretlands náði inn á þann lista frá árinu 1987 þegar Johnny Logan gerði það með Hold Me Now.

Loreen fær samkeppni frá Charlotte Perrelli sem vann Eurovision árið 1999 með laginu Take Me To Your Heaven, en þá undir nafninu Charlotte Nilsson. Selma Björnsdóttir endaði í öðru sæti í sömu keppni með laginu All Out of Luck.

Þá slá Svíar því einnig upp að sænska strákabandið The Foo Conspiracy muni taka þátt í Melodifestivalen í ár.

Roger Pontare tekur einnig þátt í þessari keppni en hann hefur í tvígang verið fulltrúi Svía í Eurovision. Fyrst árið 1994 með lagið Stjärnorna og svo árið 2000 með lagið When Spirits Are Calling My Name


Tengdar fréttir

Íslendingar greiddu um 68 þúsund atkvæði

Íslendingar greiddu hátt í 68 þúsund atkvæði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á laugardaginn. Flest atkvæðin fóru til Svíþjóðar, sem sigraði í keppninni, og næstflest til Eistlands sem fékk 10 stig frá Íslendingum.

Svíþjóð vann Eurovision - Ísland með 46 stig

Sænska söngkonan Loreen sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aserbaídsjan í kvöld, lagið fékk 372 stig. Greta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði en enduðu með 46 stig eða í 19. sæti.

Á toppnum í 15 löndum

Lagið Euphoria með Loreen hefur farið á toppinn í fimmtán löndum eftir sigurinn í Eurovision. Björk er á meðal áhrifavalda sænsku söngkonunnar. Sigurlag Eurovision-keppninnar, Euphoria með sænsku söngkonunni Loreen, hefur farið sigurför um heiminn að undanförnu. Eftir að úrslitin urðu ljós rauk lagið í toppsæti vinsældarlista iTunes í fimmtán löndum, þar á meðal í Bretlandi, Þýskalandi, Danmörku, Grikklandi, Spáni og Eistlandi. Það að lagið skuli hafa náð toppnum í Bretlandi er nokkuð merkilegt því þetta er í fyrsta sinn síðan 1996 sem Eurovision-lag nær þeim árangri. Þá fór hin ástralska Gina G í efsta sætið með hinu grípandi Ooh Aah... Just a Little Bit sem hún söng fyrir hönd Bretlands. "Ég vona að Euphoria verði í hjörtum fólks eins lengi og mögulegt er," sagði Loreen eftir að sigurinn í Eurovision var í höfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×