Skoðun

Lopapeysuviðskipti

Ingibjörg Gréta Gísladóttir skrifar
Töluvert hefur verið rætt um lopapeysuna sem gefin var borgarstjóra Chicago í síðustu viku og sitt sýnist hverjum um þá gjöf. En því getur enginn neitað að um íslenska hönnun er að ræða, útfærslu á hinni íslensku lopapeysu sem aftur er talin hafa mótast fyrir áhrif erlendra prjónahefða sem bárust til landsins fyrir margt löngu. Þessi umræða er athyglisverð nú nokkrum dögum eftir HönnunarMars þar sem íslensk hönnun er dregin fram í sviðsljósið. „Aðferðafræði hönnunar býr yfir tækifærum til sköpunar og endursköpunar“ segir meðal annars á vef Hönnunarmiðstöðvar og er því ekki hægt að líta svo á að um endursköpun íslensku lopapeysunnar sé að ræða? Hvort mikil rannsóknarvinna liggi að baki hönnunar lopapeysunnar sem prjónuð er í Kína eftir uppskrift íslensks hönnunarfyrirtækis skal ósagt látið en gaman væri að heyra um hönnunarferli peysunnar í ljósi allrar þeirrar umræðu sem hún hefur valdið. En nóg af lopapeysumálinu.

HönnunarMars er kominn í hóp með stóru hátíðunum eins og RIFF, Airwaves og menningarnótt. Hingað koma erlendir aðilar sérstaklega til að kynna sér íslenska hönnun, samræður og tengingar eiga sér stað og íslensk hönnunarvara selst sífellt meira í erlendar verslanir í gegnum DesignMatch sem haldinn er samhliða HönnunarMars. Það mega aðstandendur hátíðarinnar eiga að þeim hefur tekist að tengja hönnun og viðskipti saman með hreint ágætis árangri og er það fín búbót í íslenskt þjóðarbú. Íslensk hönnun þykir frjó, dulúðug og oft á tíðum framandi. Hún er gjarnan tengd við okkar stórbrotnu náttúru sem í fjölbreytileika sínum kemur sífellt á óvart. En tækifærin væru ansi fátækleg ef ekki kæmu til erlendir framleiðendur sem vinna með íslenskum hönnuðum við að útfæra hönnun þeirra til framleiðslu. Flóran væri ekki eins fjölbreytt ef eingöngu væri framleitt hérlendis úr innlendu hráefni. Meira að segja ítölsku hátískufyrirtækin framleiða hluta af sinni vörulínu í öðrum löndum eins og Kína, ástæðan er sú sama og hér, ódýrari aðföng og fleiri tækifæri á markaði.

Hitt er svo annað mál að það er gæðastimpill að vara sé framleidd á heimamarkaði þeirra, Ítalíu, því hefðin er sterk og framleiðendur með áratuga reynslu í faginu, nokkuð sem við hér á landi eigum enn töluvert í land með og þangað til þurfum við á erlendum framleiðendum að halda.

Komum okkur upp úr skotgröfunum, viðurkennum stöðuna eins og hún er og stöndum við bakið á íslenskri hönnun í margbreytileika sínum – smekkur er síðan aftur á móti persónubundinn og dæmir hver fyrir sig, á þeim forsendum.




Skoðun

Sjá meira


×