Innlent

Lokun Silfru: „Ætlum ekki að una lengur við þessar aðstæður að þjóðgarðurinn sé vettvangur hættulegra íþrótta“

Jóhann K. Jóhannsson og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Ekki hefur verið ákvörðun um áframhaldandi lokun Silfru eftir helgi
Ekki hefur verið ákvörðun um áframhaldandi lokun Silfru eftir helgi vísir/gva
Ekki hefur verið ákvörðun um áframhaldandi lokun Silfru eftir helgi, en svæðinu var lokað í morgun eftir enn eitt banaslysið í gær. Þjóðgarðsvörður fundaði með Samgöngustofu vegna málsins í morgun.

Lokun Silfru tók gildi klukkan níu í morgun og stendur til klukkan átta á mánudagsmorgun. Slysið í gær er tíunda alvarlega slysið í Silfru á síðustu sjö árum, en þar af eru fimm þeirra banaslys. Ólafur Örn Haraldsson, þjóðargarðsvörður á Þingvöllum segir að tíðni alvarlegra slysa í Silfru á Þingvöllum geri það að verkum að grípa verði til aðgerða.

Ólafur Örn Haraldsson
„Við viljum með þessu leggja áherslu á það, við rekstaraðilar þarna, að við ætlum ekki að una lengur við þessar aðstæður að þjóðgarðurinn sé vettvangur hættulegra íþrótta eða afþreyingar,“ segir Ólafur Örn í samtali við fréttastofu.

Maðurinn sem lést í gær var ferðamaður í skipulagðri ferð með fjölskyldu sinni. Hann var á sjötugsaldri og var við yfirborðsköfun þegar slysið átti sér stað. Alls eru níu fyrirtæki sem selja skipulagðar ferðir í Silfru. Ólafur Örn segir að öll þessi fyrirtæki vandi starf sitt mjög vel en grípa verði til aðgerða.

„Við gerum okkur engan leik að því að spilla þeim en nú er málið bara komið á það stig að það er ekki hægt að una við þetta lengur,“ segir Ólafur Örn sem mun kalla forsvarsmenn fyrirtækjanna til sín til þess að fara yfir stöðu mála.

Í morgun fundaði þjóðgarðsvörður með Samgöngustofu og umhverfisráðuneytinu. Fara á yfir verklag rekstraraðika og þær reglur sem gilda um þá sem stunda köfun og yfirborðsköfun í gjánni. Ólafur Örn segir að óvíst sé hvort að lokunin vari lengur en fram á mánudag eða hvort Silfra opni með nýjum skilyrðum.

Lögregla mun aðstoða þjóðgarðsverði við að framfylgja lokuninni.


Tengdar fréttir

Silfru lokað eftir banaslys

Verður Silfru lokað frá klukkan 09 laugardaginn 11. mars til klukkan 08 mánudaginn 13 mars.

Rask á lífríki Silfru vegna fjölda kafara

Rannsókn á lífríki Silfru sýndi rask í vistkerfinu þegar 20.000 manns köfuðu þar eða snorkluðu. Síðan hafa 30.000 manns bæst við. Enn ein ástæðan til að takmarka fjölda ferðamanna á staðnum, segir fræðslustjóri þjóðgarðsins.

Umhverfisráðherra vill stýra umferð í Silfru

Umhverfisráðherra segir brýnt að skoða hvernig ferðaþjónustufyrirtæki nýta sér Þingvelli. Þjóðgarðsvörður vill að Samgöngustofa hafi öryggisverði við Silfru sem hafi eftirlit með starfseminni sem þar fer fram.

Lést eftir snorkl í Silfru

Erlendur ferðamaður, sem sóttur var með þyrlu landhelgisgæslunnar, þar sem hann missti meðvitund við köfun í Silfru, er látinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×