Innlent

Lokuðu veitingastað vegna dvalar ungmenna

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Kolbeinn Tumi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir frá því á Instagram síðu sinni að lögregluþjónar hefðu lokað veitingastað á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Það hefði verið gert vegna dvalar ungmenna undir 18 ára aldri inn á staðnum eftir klukkan 22:00 og drykkju ungmenna undir áfengiskaupaaldri.

Í texta við myndir frá veitingastaðnum á Instagram segir að starfsmaður staðarins, sem hafi verið einn að störfum, hafi haldið því fram að skemmtunin væri lögleg. Vegna þess að ungmennin hefðu leigt staðinn og komið með eigið áfengi.

Áfenginu var hellt niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×