Sport

Loksins tókst Murray að hafa betur gegn Djokovic

Murray og Djokovic eftir rimmuna í gær.
Murray og Djokovic eftir rimmuna í gær. vísir/getty
Eftir að hafa tapað átta sinnum í röð fyrir Novak Djokovic tókst Andy Murray loksins að leggja Serbann að velli.

Sigurinn kom á góðum tíma því þeir voru að mætast í úrslitum í Rogers Cup í Montreal. Murray vann í þrem settum.

Þetta var fjórði titill Murray á árinu. Murray hafði ekki tekist að leggja Djokovic síðan hann hafði betur í úrslitum á Wimbledon árið 2013.

Þessi sigur gefur Murray mikið og sendir hann þess utan upp í annað sætið á heimslistanum á kostnað Roger Federer. Djokovic er sem fyrr á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×