Handbolti

Loksins sigur hjá Fram | Myndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fram vann sinn fyrsta leik í Olís-deild karla í kvöld er Selfoss kom í heimsókn.

Eftir mikinn barning höfðu Framarar betur, 31-27. Fram hafði nælt í eitt jafntefli fyrir leikinn í kvöld.

Selfoss er nú búið að vinna tvo leiki og tapa tveimur.

Arnar Birkir Hálfdánsson og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoruðu báðir sex mörk fyrir Fram í kvöld.

Elvar Örn Jónsson var markahæstur í liði Selfoss með átta mörk og Teitur Örn Einarsson skoraði sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×