Enski boltinn

Loksins fékk skynsemin að ráða í brjáluðum heimi félagaskipta

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson samdi við Everton í vikunni, eftir að fyrstu umferð deildarinnar lauk.
Gylfi Þór Sigurðsson samdi við Everton í vikunni, eftir að fyrstu umferð deildarinnar lauk. Vísir/AFP
„Loksins mun skynsemin ráða. Loksins er ríkasta deild heimsins að taka af skarið og hætta þessu brjálæði í kringum félagskiptagluggann.“ Svona byrjar Jason Burt, fréttamaður fyrir breska blaðið Telegraph, leiðara sinn um þá ákvörðun að enska úrvalsdeildin ætli að loka fyrir félagaskiptagluggann áður en deildin hefst á næsta tímabili.

Vísir greindi frá því í vikunni að umræða sé hjá félögum ensku úrvalsdeildarinnar að stytta félagskiptagluggann.

Burt segir að það sé engin spurning um að taka eigi þessa ákvörðun. Eins og fyrirkomulagið er í dag þá lokar glugginn í lok ágúst. Þá hefur enska úrvalsdeildin verið í gangi í þrjár vikur.

Þjálfarar þurfa að sitja undir spurningum um hvort þessi eða hinn leikmaðurinn muni ganga til liðs við liðið, hvort ástæðan fyrir að ákveðinn leikmaður sé ekki í leikmannahóp sé því að það á að selja þann leikmann. 

Svo eru þeir leikmenn sem ekki vilja spila fyrir félagið sem þeir eru hjá því þeir bíði eftir sölu. Burt minnist á leikmenn sem eru „ekki með rétta hugarfarið“, og getur þá ekki átt við neinn annan en Gylfa Þór Sigurðsson sem sagðist ekki getað spilað fyrir Swansea af þessar ástæðu.

Það er engin rökrétt ástæða fyrir því að glugginn sé opin svona lengi, að mati Burt. Glugginn opnar 1. júlí og það sé nægur tími fram til byrjunar tímabilsins fyrir félögin að ganga frá sínum kaupum.

Philippe Coutinho vill fara til Barcelona.vísir/getty
Í samantekt Telegraph má sjá áhrifin sem yfirvonandi félagaskipti höfðu á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Philippe Coutinho bað formlega um að vera seldur frá Liverpool sólarhring áður en liðið spilaði við Watford. Hann glímir reyndar við meiðsli, en hefði mögulega getað komið eitthvað við sögu hefði hann ekki farið fram á sölu.

Alexis Sanchez horfði á opnunarleik deildarinnar úr stúkunni en ekki af varamannabekk Arsenal þar sem hann hefði líklega setið væri Manchester City ekki enn á eftir honum.

Virgil van Dijk æfir ekki með Southampton heldur einn á báti og spilaði ekki gegn Swansea.

Diego Costa er enn í Brasilíu og neitar að snúa aftur til Chelsea þar sem hann vill fara frá félaginu og snúa aftur til Spánar.

Ross Barkley var ekki í leikmannahópi Everton þar sem líklegt þykir að hann sé á leið til Tottenham.

Allir þessir leikmenn hefðu líklega spilað með sínum félagsliðum ef ekki væru yfirvofandi félagaskipti. Það verður að teljast líklegt að félögin í ensku úrvalsdeildinni samþykki þessar breytingar á reglugerðum, en kosning um þetta mál fer fram 7. september.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×