Innlent

Löke-málið: Konunum fækkaði um fjórar

Bjarki Ármannsson skrifar
Lögreglumaðurinn Gunnar Scheving Thorsteinsson.
Lögreglumaðurinn Gunnar Scheving Thorsteinsson. Vísir/Valli
Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka sér allt að fjórar vikur til þess að taka afstöðu til frávísunarkröfu lögreglumannsins sem ákærður er fyrir brot í opinberu starfi í Löke-málinu svokallaða. Þetta var niðurstaðan þegar gögn voru lögð fram til stuðnings frávísunarkröfunni við fyrirtöku í héraðsdómi í morgun.

Garðar Steinn Ólafsson, lögmaður lögreglumannsins Gunnars Scheving Thorsteinssonar, gerði munnlega grein fyrir frávísunarkröfunni við fyrirtökuna í morgun. Taldi hann upp mörg atriði, meðal annars að ekki hefði verið staðið nógu vel að rannsókn málsins auk þess sem ekki væri enn skýrt fyrir hvað nákvæmlega umbjóðandi hans væri ákærður.

„Enda kemur það fram að ákæruvaldið er enn að breyta ákærunni þar sem hún veit ekki nákvæmlega hvað þessu meintu brot eiga að hafa verið,“ segir Garðar. Hann vísar þar til þess að Kolbrún Benediktsdóttir, sem sækir málið fyrir hönd ríkissaksóknara, lagði fram breytta ákæru við fyrirtökuna í morgun.

Í öðrum lið ákærunnar var Gunnar ákærður fyrir að fletta upp nöfnum 45 kvenna í málaskárkerfi lögreglunnar, Löke, án þess að uppflettingar tengdust starfi hans en fjöldi þeirra er nú talinn 41. Við nánari rannsókn hafi komið á daginn að fjórar konur hafi verið tengdar málum sem voru á könnu lögreglumannsins. Þetta meinta brot er talið varða við 139. grein almennra hegningarlaga.

Í síðari lið ákærðurnar er hann sakaður um að hafa mánudaginn 20. ágúst 2012, sent tölvuskeyti á Facebook með upplýsingum sem leynt áttu að fara. Ákærði sendi nafn og lýsingu á 13 ára gömlum dreng sem ákærði hafði afskipti af í starfi sínu sem lögreglumaður, auk upplýsinga um ástæðu afskiptanna. Telst þetta varða við 1. mgr. 136. gr. almennra hegningarlaga.


Tengdar fréttir

Vita ekki að þeim var flett upp

Konurnar 45 sem lögreglumaður er ákærður fyrir að hafa flett upp í LÖKE kerfinu hafa ekki verið látnar vita af tengslum sínum við málið.

Endurskoða innra eftirlit vegna njósna

Í gær var þingfest ákæra á hendur lögreglumanni sem sakaður er um að hafa flett upp upplýsingum um 45 konur. Ekkert eftirlit er með notkun LÖKE-kerfis lögreglu.

Segir umfjöllun fjölmiðla byggja á ósannindum

Ríkissaksóknari hefur birt lögreglumanninum í LÖKE-málinu svokallaða, Gunnari Scheving Thorsteinssyni, ákæru fyrir tvö meint brot í opinberu starfi. Hann er sakaður um að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í upplýsingakerfi lögregunnar, ásamt því að hafa sent félaga sínum upplýsingar um þrettán ára gamlan dreng sem hann hafði afskipti af í starfi sínu sem lögreglumaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×