Bíó og sjónvarp

Lokastiklan úr X-Men: Apocalypse: Mystique fer fyrir hópnum og gamall vinur réttir hjálparhönd

Birgir Olgeirsson skrifar
Þriðja og síðasta stiklan úr X-Men: Apocalypse hefur litið dagsins ljós og kennir ýmissa grasa í henni. Myndin mun segja frá baráttu ofurhetjanna úr X-Men liðinu við En Sabah Nur sem gengur undir nafninu Apocalypse og er almennt talinn í sagnabálki Marvel einn af fyrstu stökkbreyttu einstaklingurinn í ætt við þá sem eru í X-men og jafnframt einn sá allra öflugasti.

Í þessari stiklu fá áhorfendur sjá Mystique, leikin af Jennifer Lawrence, taka að sér það hlutverk að leiða hina ungu meðlimi X-Men í baráttunni gegn Apocalypse sem er ódauðleg vera sem býr yfir nánast guðlegum mætti. Hann fæddist fyrir fimm þúsund árum og lifir eftir þeirri sannfæringu að aðeins þeir sterku eigi rétt til lífs. Í gegnum Marvel-sagnabálkinn hefur hann reynt að eyða lífi á jörðinni nokkrum sinnum og mun hann sannarlega reyna það í þessari mynd. 

Margir aðdáendur myndarinnar tóku andköf í dag þegar Wolverine birtist í lok stiklunnar en hingað til höfðu framleiðendur myndarinnar gert sem minnst úr aðkomu hans í þeirri atburðarás sem mun eiga sér stað í X-Men: Apocalypse. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×