Innlent

Lokaniðurstöður vegna flugslyssins á Akureyri liggja enn ekki fyrir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Flugslysið varð hinn 5. ágúst 2013.
Flugslysið varð hinn 5. ágúst 2013.
Lokaniðurstöður rannsóknar á flugslysinu á kappakstursbraut Bílaklúbbs Akureyrar í fyrra liggja ekki fyrir og ekki er hægt að segja til um hvenær niðurstöðu sé að vænta. Þorkell Ágústsson hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir í samtali við Vikudag að vonir hafi verið bundnar við að ljúka rannsókninni á þessu ári en nú sé það alls óvíst og að eðlilegt sé að mál af þessari stærðargráðu taki langan tíma.

„Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur og við höfum opnað alls 22 mál það sem af er ári. Þetta er erfitt og vandmeðfarið mál,“ er haft eftir Þorkeli.

Hinn 5. ágúst 2013 brotlenti sjúkraflugvél Mýflugs á akstursíþróttabrautinni við Hlíðarfjallsveg á Akureyri með þeim afleiðingum að tveir létust.  Vélin hafði flutt sjúkling til Reykjavíkur frá Hornafirði en óskað var eftir því við flugturninn að fá að fljúga einn hring yfir bæinn, sem fékkst samþykkt.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa sendi frá sér bráðabirgðaskýrslu í október síðastliðnum. Þar segir að flugvélin hafi misst hæð í þann mund sem hún nálgaðist íþróttabrautina með þeim afleiðingum að vinstri vængur hennar snerti jörð við hægri hlið akstursíþróttabrautarinnar þannig að hún brotlenti.  Í skýrslunni segir jafnframt að frekari rannsókn muni beinast að því hvers vegna flugvélin missti hæð.


Tengdar fréttir

Myndband af flugslysinu við Hlíðarfjallsveg

Fréttastofa 365 birtir nú í fyrsta sinn opinberlega myndband sem sýnir þegar TF-MYX sjúkraflugvél Mýflugs brotlendir á akstursíþróttabraut við Hlíðarfjallsveg á Akureyri hinn 5. ágúst 2013. Tveir létust í flugslysinu. Fréttastofan metur það svo að birting myndbandsins eigi erindi við almenning m.a vegna forvarnar- og upplýsingagildis.

Mýflug taldi tryggingavernd viðunandi

Mat stjórnar Mýflugs var að tryggingavernd félagsins væri viðunandi, þegar stjórn hittist á fundi til að ræða flugslysið á Akureyri 5. ágúst síðastliðinn að kvöldi slysdagsins og til þess fallin að tryggja að staðið yrði við allar skuldbindingar.

Þriðja slysið í lágflugi á fjórum árum

Flugslysið við Hlíðarfjall á Akureyri í fyrra sem Vísir hefur fjallað um í dag er það þriðja á rúmum fjórum árum þar sem flugvél var í lágflugi.

Ísland í dag: Fréttaskýring um flugslysið við Hlíðarfjallsveg

Í meðfylgjandi myndskeiði má nálgast fréttaskýringu sem birtist í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld um flugslysið á akstursíþróttabrautinni við Hlíðarfjallsveg á Akureyri 5. ágúst síðastliðinn. Fjölskylda eins þeirra sem lést í slysinu hefur efasemdir um rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa og hefur farið fram á lögreglurannsókn á slysinu.

„Beygjan að brautinni var alltof skörp“

Bróðir Péturs Tryggvasonar sem fórst í flugslysi á Akureyri í ágúst segir kröfu um rannsókn byggjast á hagsmunum tveggja barna sem Pétur skilur eftir sig.

Vilja áfram hagstætt samstarf við Mýflug

Sjúkrahúsið á Akureyri og Sjúkratryggingar Íslands vilja framlengja samning við Mýflug um sjúkraflug. Ekki eigi að raska farsælu og hagstæðu samstarfi. Flugsvið Samöngustofu sá ekki ástæðu til ráðstafana vegna Mýflugs eftir Akureyrarslysið.

Vilja rannsókn á Hlíðarfjallsslysinu

Bróðir sjúkraflutningamanns sem fórst er sjúkraflugvél brotlenti á kappakstursbraut á Akureyri í ágúst hyggst krefjast opinberrar rannsóknar á slysinu. Flugstjórinn lést einnig í slysinu en aðstoðarflugmaðurinn, sem varaði hann við því að flogið væri allt

Viðtal: Takast á við bróðurmissinn

Bræðurnir Mikael og Rolf Tryggvasynir sem misstu bróður sinn Pétur Róbert Tryggvason í flugslysinu við Hlíðarfjallsveg takast nú á við bróðurmissinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×