Bíó og sjónvarp

Lokamynd Sólveigar Anspach keppir á Cannes

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Sólveig Anspach átti eina af vinsælustu mynd Frakka árið 2013.
Sólveig Anspach átti eina af vinsælustu mynd Frakka árið 2013. Vísir
Síðasta mynd Sólveigu Anspach, sem lést eftir langa baráttu við krabbamein í fyrra, er á meðal mynda sem keppa í flokknum Director‘s forthnight á Cannes í maí. Sólveig kláraði tökur á myndinni, sem ber nafnið Sundáhrifin (L‘effet aquatigue), aðeins nokkrum mánuðum áður en hún lést í fyrra 54 ára að aldri.

Sólveig náði einnig að klippa stóran hluta myndarinnar sjálf en samstarfsfólk hennar kláraði hana svo eftir tilmælum Sólveigar. Myndin, sem heitir The Together Project upp á enskuna, verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni.

Kvimyndin Sundáhrifin er lokamynd þríleyksins um Önnu skáld og son hennar.Vísir/ZikZak
Lokahluti þríleyks

Myndin er lokahluti þríleiks sem hófst með myndinni Skrapp út sem kom út árið 2008 og skartaði Diddu Jónsdóttur skáldi í hlutverki Önnu dópsala í Reykjavík. Önnur mynd þríleiksins hét Queen of Mentreuil en í henni var Anna strandaglópur í Frakklandi ásamt syni sínum. Í þeirri mynd kynnast þau ungri ekkju, að nafni Agathe, í úthverfi Parísar.

Í lokahlutanum kemur svo Agathe til Íslands, til þess að sitja alþjóðlega ráðstefnu sundkennara í Hörpu, og hittir hún aftur Önnu og son hennar í Reykjavík. Handrit myndarinnar skrifaði Sólveig sjálf í samstarfi við Jean-Luc Gaget.

Sólveig átti þó nokkurri velgengni að fagna í Frakklandi, þar sem hún bjó og starfaði að mestu. Hún leikstýrði meðal annars og skrifaði gamanmyndina Lulu femme nue sem var ein tekjuhæsta mynd Frakka árið 2013 og var tilnefnd til Cesár verðlaunanna þarlendis fyrir handrit myndarinnar. Um 500 þúsund manns sáu myndina í bíó í Frakklandi í fyrra.

Sólveig Anspach fæddist í Vestmannaeyjum árið 1960 og eftir hana liggja 14 bíómyndir og heimildamyndir. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×