Innlent

Lokað við Skipholt vegna framkvæmda

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hér má sjá skýringarmynd sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í tilefni lokunarinnar.
Hér má sjá skýringarmynd sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í tilefni lokunarinnar. Mynd/Lögreglan
Unnið er við að leggja nýja vatnslögn með fram Kringlumýrarbraut og í morgun var byrjað að grafa fyrir henni þvert á Háaleitisbraut. Vegna framkvæmdanna verður þeim kafla Háaleitisbrautar sem liggur frá Kringlumýrarbraut að Skipholti lokað tímabundið. 

Áætlað er að lokunin vari í viku en brjóta verður lögninni leið um klöpp undir götunni. 

Framkvæmdin hefur ekki áhrif á umferð bíla um Kringlumýrarbraut að frátöldu því að ekki verður hægt að beygja af Kringlumýrarbraut inn á þennan kafla Háaleitisbrautar að Skipholti. 

Lokunin hefur aðeins áhrif á leið 11 hjá Strætó og verða tilkynningar settar upp á þær biðstöðvar sem falla tímabundið úr þjónustu, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×