Innlent

Loka fyrir umferð um Hellisheiði vegna umferðaróhapps

Birgir Olgeirsson skrifar
Vísir/Anton
Veginum um Hellisheiði hefur verið lokað fyrir umferð um skeið vegna umferðaróhapps að því er fram kemur á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar lentu snjóruðningstæki og fólksbíll saman í Hveradalsbrekku en einn var fluttur á sjúkrahús á Selfossi til athugunar. Veðrið er orðið ansi slæmt á þessum slóðum og ekki vitað að svo stöddu hvenær opnað verður fyrir umferð um veginn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×