Innlent

Loka fyrir rafmagn í Naustahverfi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
mynd/norðurorka
Lokað verður fyrir rafmagn í hluta Naustahverfis á Akureyri á morgun á milli klukkan 9.30 og 15.30. Ástæðan er vinna við dreifikerfi en alls eru um 300 húsveitur á áhrifasvæði rofsins.

Fólki er bent á að skoða góð ráð komi til þjónusturofs á heimasíðu Norðurorku. Þá fá þeir sem skráðir eru með farsímanúmer á vefsíðu þeirra upplýsingar um rofið.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×