Erlent

Lögregluþjónn skotinn til bana í San Diego

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Einn lögregluþjónn var skotinn til bana og annar særður í skotárás í San Diego í morgun. Lögreglan er með einn í haldi vegna árásarinnar en særðist í skotbardaga við lögreglu. Þá stóð yfir ítarlega leit í íbúðarhverfi í borginni þar sem árásin átti sér stað.

Búist er við því að særði lögregluþjónninn muni lifa af.

Samkvæmt AP fréttaveitunni var lögreglan með gífurlegan viðbúnað í hverfinu og var íbúum skipað að halda sig inni. Samkvæmt CNN voru lögregluþjónarnir að stöðva bíl þegar þeir voru skotnir.

Báðir lögregluþjónarnir voru meðlimir í sérstakri sveit lögreglunnar gegn skipulagðri glæpastarfsemi, en aðstæður árásarinnar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×