Innlent

Lögreglumenn björguðu kóp á Akureyri

Birgir Olgeirsson skrifar
Fylgdust lögreglumenn með kópnum um tíma eftir að honum hafði verið sleppt en hann synti sperrtur út á pollinn.
Fylgdust lögreglumenn með kópnum um tíma eftir að honum hafði verið sleppt en hann synti sperrtur út á pollinn.
Lögreglumenn á Akureyri björguðu selkóp sem var fastur í fjörunni við Drottningarbraut. Lögreglan segir að kópurinn hafi verið skorðaður á milli tveggja steina og náði ekki að losa sig.

Var honum komið til bjargar og sleppt aftur í pollinn en lögreglan segir ekkert hafi virst ama að honum. Fylgdust lögreglumenn með kópnum um tíma eftir að honum hafði verið sleppt en hann synti sperrtur út á pollinn.

Vonast lögreglan til að ekki þurfi að veita honum frekari aðstoð og að hann nái að spjara sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×