Erlent

Lögreglumanni fylgt til grafar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Harmi slegnir íbúar Almenningi í New York er brugðið vegna lögreglumorðanna.
Harmi slegnir íbúar Almenningi í New York er brugðið vegna lögreglumorðanna. NordicPhotos/afp
Fjölskylda, vinir og samstarfsfélagar úr lögreglunni í New York komu saman í gær til þess að minnast annars af tveimur lögreglumönnum sem féll fyrir hendi byssumanns í Brooklyn í síðustu viku. Hinn fertugi Rafael Ramos var lagður til hinstu hvílu. Hann var kvæntur, faðir tveggja drengja.

Fjöldi fólks var viðstaddur athöfnina. Ramos og samstarfsmaður hans í lögreglunni voru skotnir til bana. Byssumaðurinn hafði áður hótað því að skjóta lögreglumenn. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur fordæmt ódæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×