Innlent

Lögreglumaður situr í gæsluvarðhaldi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ríkissaksóknari hefur málið til rannsóknar en þangað skal vísa málum þegar grunur leikur á að starfsmenn lögreglu hafi gerst brotlegir í starfi.
Ríkissaksóknari hefur málið til rannsóknar en þangað skal vísa málum þegar grunur leikur á að starfsmenn lögreglu hafi gerst brotlegir í starfi. Vísir/GVA
Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa brotið af sér í starfi. Ríkissaksóknari hefur málið til rannsóknar en þangað skal vísa málum þegar grunur leikur á að starfsmenn lögreglu hafi gerst brotlegir í starfi.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var lögreglumaðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald rétt fyrir áramót og hefur verið í síðan. Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu vísaði á ríkissaksóknara, Sigríði Friðjónsdóttur, í samtali við fréttastofu. Ríkissaksóknari segir hins vegar engu við að bæta að svo stöddu að lögreglumaður sitji í gæsluvarðhaldi.

Samkvæmt heimildum Fréttatímans mun nafn lögreglumannsins, sem er starfsmaður fíkniefnadeildar lögreglu, hafa birst í upplýsingakerfi lögreglunnar (LÖKE) yfir menn í gæsluvarðhaldi. Þaðan var því kippt út en greinilega ekki nógu snemma til þess að út spurðist að umræddur lögreglumaður væri í varðhaldi.

Vísir hefur undanfarnar vikur fjallað ítarlega um lögreglumann hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem færður var til í starfi vegna gruns um að hann læki upplýsingum til aðila sem væru til rannsóknar. Ekki er um sama lögreglumann að ræða.

Kim Kliver, yfirlögregluþjónn hjá dönsku lögreglunni, segir ámælisvert að lögreglumaðurinn hafi gegnt yfirmannsstöðu hjá fíkniefnadeild og upplýsingadeild.Skjáskot af vef tv2lorry.dk
Færður til í starfi en engin óháð rannsókn

Athygli vekur að í því tilfelli fór engin óháð rannsókn fram á lekanum og var málinu ekki vísað til ríkissaksóknara.

Hins vegar var lögreglumaðurinn færður sem fyrr segir til í starfi en hann hafði þá í töluverðan tíma gegnt bæði yfirmannsstöðu innan upplýsingadeildar og fíkniefnadeildar sem ku vera einstakt og ámælisvert að mati yfirlögregluþjóns hjá dönsku lögreglunni. Var hann í aðstöðu til að hafa áhrif á rannsóknir umfangsmikilla fíkniefnamála enda upplýstur um hverjir væru að veita upplýsingar til lögreglu og meðvitaður um hverjir væru til rannsóknar.

Eftir að hafa verið færður úr þeirri stöðu og í nýja stöðu hjá kynferðisbrotadeild var hann aftur færður í starf við símhlustanir. Þar hafa starfsmenn upplýsingar um þá aðila sem eru til hlerunar á hverjum tíma fyrir sig - aðgerðir sem eru afar leynilegar og eiga mikið undir því að þeir aðilar sem eru til rannsóknar séu ekki meðvitaðir um að verið sé að hlusta á þá. Algengt er að hlustunarúrræði sé beitt við rannsóknir á fíkniefnamálum.

Aldís Hilmarsdóttir og Friðrik Smári Björgvinsson voru yfirmenn beggja lögreglumanna hjá fíkniefnadeildinni.Vísir
Rannsökuðu báðir fíkniefnamál

Yfirmenn þess lögreglumanns og reyndar einnig þess sem nú situr í gæsluvarðhaldi, Aldís Hilmarsdóttir og Friðrik Smári Björgvinsson, hafa ekki viljað tjá sig um það mál og vísað á Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra.

Hún hefur þó ekki viljað tjá sig um málið að svo stöddu þrátt fyrir að málið sé ekki komið formlega til rannsóknar hjá ríkissaksóknara.

Athygli vekur að báðir lögreglumennirnir hafa starfað við rannsóknir á fíkniefnamálum. Eins og Vísir hefur fjallað um geta glæpamenn haft gríðarlega hagsmuni af upplýsingum úr röðum lögreglu. Í fíkniefnamálum sem hafa verið til umfjöllunar undanfarnar vikur og mánuði getur virði einstakra sendinga til landsins numið fleiri hundruð milljónum króna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×