Innlent

Lögreglumaður í fangelsi fyrir harkalega handtöku á Laugavegi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir
Hæstiréttur þyngdi í dag refsingu yfir lögreglumanni sem ákærður var fyrir líkamsárás við handtöku konu á Laugaveginum sumarið 2013. Atvikið var áberandi í fjölmiðlum og fór myndband af handtökunni, sem þótti mjög gróf, sem eldur í sinu um netheima. Var maðurinn dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konunni 430 þúsund krónur í bætur og 300 þúsund króna sekt.

Málið vakti talsverða reiði með almennings en tekist var á um það fyrir dómi nú í nóvember. Þar var meðal annars tekist á um hvort að þær aðferðir sem lögreglumaðurinn beitti hefðu verið réttmætar.

Þyngdi Hæstiréttur þar með dóm héraðsdóms frá því í desember í fyrra þar sem maðurinn var  sektaður um 300 þúsund fyrir handtökuna.

Í dómi Hæstaréttar segir að þegar litið er til ástands konunnar, en hún var verulega ölvuð, og ástæðu þess að hún var handtekin, sé það mat dómsins að ákærði hafi farið offorsi við handtökuna.

Ekki hafi verið þörf á að setja konuna í handjárn með þeirri aðferð sem gert var, né að setja hana í lögreglubifreiðina með þeim hætti sem gert var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×