Innlent

Lögreglumaður ákærður: Grunaður um að hafa beitt handtekinn mann ofbeldi

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur lögreglumanni sem grunaður er um að hafa beitt mann sem var í haldi lögreglu ofbeldi. Myndbandsupptökur eru til af atvikinu. Lögreglumanninum var ekki vikið frá störfum en lögreglan lítur málið alvarlegum augum.

Lögreglumaðurinn er grunaður um refsivert brot í starfi með því að hafa beitt mann sem var í haldi lögreglu ofbeldi. Lögreglumaðurinn starfar í miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Atvikið er sagt hafa átt sér stað síðastliðið sumar í fangelsinu við Hverfisgötu en á meðal málsgagna er myndbandsupptaka af atvikinu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var maðurinn leið í fylgd lögreglumannsins  fyrir dóm þegar atvikið á að hafa átt sér stað. Áður en lagt var af stað á lögreglumaðurinn að hafa ráðist að manninum.

Þá herma heimildir fréttastofu að umrætt myndband úr eftirlitsmyndavélum sýni atvikið vel og kærði verjandi mannsins málið til héraðssaksóknara sem hefur rannsakað málið í nokkurn tíma en nú hefur verið gefin út ákæra á hendur lögreglumanninum. Meðal annars hafa verið teknar skýrslur af mönnunum tveimur.

Lögreglumanninum var ekki vikið frá störfum og hefur hann starfað hjá lögreglunni síðan atvikið átti sér stað síðasta sumar.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni segir að lögreglumaðurinn sé grunaður um að hafa framið alvarlegt brot í starfi á síðasta ári.  Málið varði ofbeldi gegn einstaklingi sem var í haldi lögreglunnar. Rannsókn málsins hafi verið á forræði héraðssaksóknara og hafi nú verið gefin út ákæra á hendur manninum. Þá segir að manninum hafi ekki verið vikið frá störfum þegar málið kom fyrst upp. Í janúar síðastliðnum hafi komið til álita hvort senda ætti lögreglumanninn í tímabundið leyfi vegna málsins en það hafi verið lögfræðilegt mat að það væri ekki fært þar sem of langur tími væri liðinn frá því að atvikið átti sér stað. Sú ákvörðun verði endurskoðuð í ljósi útgáfu ákærunnar og er niðurstöðu að vænta á morgun.

Verði maðurinn dæmdur sekur geti það leitt til varanlegrar brottvikningar úr lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×