Innlent

Lögreglan varar við netveiðum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Dæmi um netveiðar.
Dæmi um netveiðar. Vísir/Getty
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér aðvörun um svokallaðar netveiðar eða „Phishing“.

Í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar segir að margar tilraunir til svokallaðra netveiða hafi verið framkvæmdar hér á landi.

Með netveiðum er átt við að þegar grunlaus aðili fær tölvupóst um að hann eigi strax að fara í heimabankann sinn eða aðra síðu á borð við Paypal, Ebay eða Facebook svo dæmi séu tekin.

Dæmi um netveiðar.Mynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Þar eigi viðkomandi að leiðrétta eitthvað með því að smella á tengill sem fylgir í póstinum. Oftar en ekki sendir þessi tengill viðkomandi á síðu sem lítur eins út og heimabanki eða Paypal en er í raun fölsk síða.

Tilgangurinn er að plata viðkomandi til að setja inn skráningarupplýsingar og lykilorð sem síðan er hægt að nota til að hafa af viðkomandi fé.

Bendir lögregla á nokkrar góðar venjur til þess að viðhafa svo komast megi hjá því að lenda í netveiðum.

• Aldrei að klikka á tengla sem eru sendir á þennan hátt og fara á síður með viðkvæmum og/eða fjármálatengdum upplýsingum. Bankar og önnur fyrirtæki senda ekki slíka tengla. Alltaf að opnan nýjan glugga á vafrara og fara beint á réttan stað ef þú ert ekki viss um hvort að þetta sé svindl.

• Það eru nokkrar leiðir til að sannreyna svona síður en einfaldast er að fara aldrei um tengilinn.

Vill lögreglan einnig gjarnan fá ábendingar um svindl af þessum toga og hvetur þá sem verða varir við slíkt að senda lögreglunni skilaboð í gegnum Facebook-síðu hennar eða með því að senda póst á  abendingar@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×