Innlent

Lögreglan tekur háskaakstur til rannsóknar

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Lögreglan á Suðurlandi ætlar að rannsaka nánar háskaakstur ökumanns rútu sem náðist á myndband á Suðurlandsvegi í gær en litlu mátti muna að alvarlegt slys yrði. Sérfræðingur hjá Samgöngustofu líkir atvikinu við banatilræði.

„Það ver svakalegt að sjá þetta. Maður sér þarna hegðun sem að í rauninni er hrein heppni að það verði ekki mjög alvarlegar afleiðingar af þessari hegðun,“ segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur hjá Samgöngustofu.

Einar segir hegðun eins og sést í myndbandinu oft líka þeim sem eru í aðdraganda alvarlegustu umferðarslysa sem verða hér á landi. Á síðasta ári urðu 986 umferðarslys þar sem 1411 slösuðust. Í 47 slysum sem rekja má til framanákeyrslu slösuðust 95. Sex af þeim átján sem létust í umferðarslysum á síðasta ári voru í árekstri þar sem bílar lentu framan á hvor öðrum.

Atvikið í gær átti sér stað á Suðurlandsvegi skammt austan við Hjörleifshöfða og var rútan á vesturleið. Einar segir það í raun kraftaverk að þarna hafi ekki farið verr og í raun hafi hinir ökumennirnir forðað árekstri.

„Algjörlega. Það eru þeirra viðbrögð sem að voru alveg rétt. Þeir hægðu á sér, sérstaklega sá sem á móti kom. Hann hægði á sér og fór út í kant en það mátti litlu muna,“ segir Einar Magnús.

Mikil áhætta fylgir framúrakstri og segir Einar skilyrði til framúraksturs hér á landi mjög ströng. „Við megum ekki taka fram úr nema bara við bestu mögulegu skilyrði og þá verðum við að vanda okkur mjög vel og taka enga áhættu í þeim efnum,“ segir Einar Magnús.

Hópferðabíllinn sem um ræðir er merktur fyrirtækinu Kynnisferðum og sagði Kristján Daníelsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins í samtali við Vísi að akstursháttur ökumannsins sé engan veginn ásættanlegur. Hann sagði að hart yrði tekið á málinu. Þessu er Einar Magnús sammála.

„Ökumaður sem að verður valdur að banaslysi eða alvarlegu slysi með þessu háttalagi. Hann getur sætt ákæru um manndráp af gáleysi. Þetta er í rauninni brot á hegningarlögum. Þú ert að stofna lífi fólks í hættu bara eins og þú ert að gera þegar menn eru að viðhafa hverslags tilræði eða annað því um líkt,“ segir Einar Magnús.

Fréttastofan leitaði viðbragða við myndbandinu hjá Lögreglunni á Suðurlandi í dag og staðfesti Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli að atvikið yrði rannsakað nánar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×