Innlent

Lögreglan segir fólki á illa útbúnum bílum að fara ekki út í umferðina

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Veðrið skellur á um átta í dag og hvetur lögreglan þá sem eru á vel búnum bílum að fara snemma af stað. Mynd úr safni.
Veðrið skellur á um átta í dag og hvetur lögreglan þá sem eru á vel búnum bílum að fara snemma af stað. Mynd úr safni. Vísir/Auðunn
Lögreglan hvetur fólk til að fara snemma af stað sé það á vel búnu ökutæki til vetraraksturs. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að miklum skafrenningi og byl sé spáð nú í morgunsárið en að veðrið sé örlítið seinna á ferðinni en áætlað var.

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bendir fólki á að ef það ætlar af stað í morgunsárið sé það komið á áfangastað fyrir kl. 8 þegar veðrið á að skella á,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. „Gert er ráð fyrir að um hádegi nái veðrið hámarki með mikilli snjókomu.“

Lögreglan ítrekar í tilkynningunni að þeir sem ekki hafa útbúið ökutæki sín til vetraraksturs fari ekki af stað og tefji þannig umferð vegna vanbúnaðar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×