Innlent

Lögreglan óskar eftir að ná tali af þessum dreng

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í tilkynningu frá lögreglunni er pilturinn vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Vínlandsleið.
Í tilkynningu frá lögreglunni er pilturinn vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Vínlandsleið. visir/anton
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af piltinum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Í tilkynningu frá lögreglunni er pilturinn vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Vínlandsleið 2-4 í Grafarholti í síma 444-1000.

Ef einhverjir þekkja til piltsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, eða senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið sigurdur.petursson@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×